Ferðaskilmálar og reglur

Staðgreiða þarf í allar ferðir, verkefni og námskeið við bókun, nema annað sé tekið fram.

Verð í ferðir og námskeið félagsins er sett fram með tvennum hætti: Annars vegar fyrir félagsmenn FFÍ og hins vegar fyrir þá sem ekki eru skráðir félagsmenn. FFÍ áskilur sér rétt til að innheimta árgjald félagsins eða mismun almenns verðs og félagsverðs hafi félagsverð verið greitt án virkrar félagsaðildar.
1.

2.

3.

4.

Ferðafélag Ísfirðinga - ferðaáætlun 2021

ALLIR eru velkomnir - félagsmenn jafnt sem aðrir

1. Söguferð um Þingeyri og ganga upp á Sandafell 
15.maí kl.10 við íþróttamiðstöðina á Þingeyri.
Bæjarrölt um Þingeyri og gengið upp á Sandafell í lok ferðar. 
Fararstjóri:  Gunnhildur Björk Elíasardóttir 

 

2. Kaldalón – Reykjarfjörður – Kaldalón.
22.maí - 24.maí. Mæting kl: 10 við Mórillubrú í Kaldalóni
Verð 35.000/40.000.
Gengið á skíðum yfir Drangajökul.
Gist í húsi í 2 nætur í Reykjarfirði.
Skráning og staðfestingargjald kr. 10.000 greiðist fyrir 17.maí  
thrj55@gmail.com  
Innifalið svefnpokagisting og fararstjórn.
Hámark 20 manns.
Fararstjóri: Þröstur Jóhannesson. 

 

3. Söguferð um Suðureyri fyrir (h)eldri borgara 60+
5. júní,
lagt af stað frá Bónus kl.10. 1,5 – 2 tíma ganga.
Veitingar í lok gönguferðar.
Fararstjórar: Jóhannes Aðalbjörnsson og Emil Ingi Emilsson

 

4. Seljadalur
12.júní kl. 10. Á einkabílum frá Skarfaskeri.
Gengið upp í Seljadal.
Sagt frá örnefnum og því helsta um verbúðir á svæðinu. 
Fararstjóri: Emil Ingi Emilsson 

 

5. Klofningsheiði, Flateyri - Staðardalur  
19.júní kl. 9. Á einkabílum frá Bónus á Ísafirði.
Fararstjórar: Ragnar Ágúst Kristinsson og Jónína Eyja Þórðardóttir.

 

6. Vatnadalur í Súgandafirði  
26.júní kl. 10. Á einkabílum frá Bónus á Ísafirði. 
Fararstjórar: Jóhannes Aðalbjörnsson og Emil Ingi Emilsson 
😉

 

7. Napi
3.júlí  kl:   kl. 8 á einkabílum frá Bónus á Ísafirði.
Gengið frá Melanesi upp Sjöundárdal á fjallið Napa austan Rauðasands. 
Fararstjóri: Magnús Valsson

 

8. Skálmardalsheiði,  Skálmardalur – Gjörvidalur  
10.júlí kl. 8.. Á einkabílum frá Bónus Ísafirði, bílar geymdir við Gjörvidal. 
Kl. 10 í  Gjörvidal.  
Skráning fyrir  1.júlí á ferdafelag.isfirdinga@gmail.com 
Verð auglýst  síðar. 
Fararstjóri: Marinó Hákonarson 

 

9. Gullhúsá  –  Grunnavík    
17.júlí kl. 8. frá Sundahöfn á Ísafirði. 
Gengið frá Gullhúsá yfir í Grunnavík.
Þorpsganga um Grunnavík og inn að Stað
og Faxastöðum ef tími vinnst til.
Boðið upp á kjarngóða og ljúffenga súpu á heimleið. 
Skráning fyrir 7.júlí á ferdafelag.isfirdinga@gmail.com
Verð auglýst síðar. 
Fararstjóri:  Emil Ingi Emilsson 

 

10. Lokinhamradalur  –  Haukadalur    
24.júlí kl. 9:30. Á einkabílum frá Bónus á Ísafirði í Lokinhamradal. 
Fararstjóri:  Þórir Örn Guðmundsson 

---------------

Gönguhátíð í Súðavík  30. júlí – 2.ágúst

11. Álftafjörður - Önundarfjörður 
30.júlí kl. 8:30. Mæting við búðina í Súðavík kl:08:30.
Gengið milli Álftafjarðar og Önundarfjarðar
um Álftafjarðarheiði (Heiðarskarð) Göngutími er áætlaður 7 tímar.
Fararstjórar: Barði Ingibjartsson og Anna Lind Ragnarsdóttir

 

12. Súðavíkurfjall   Arnarnes – Traðargil – Súðavík    
31.júlí kl. 08:30 við búðina í Súðavík.
Gengið frá Arnardal um Súðavíkurfjall og komið niður
í Traðargilshvilft og niður til Súðavíkur. Vegalengd um10 km,
uppsöfnuð hækkun 700 m og göngutími er áætlaður 6-7 tímar.   
Fararstjórar:  Anna Lind Ragnarsdóttir og Barði Ingibjartsson 

 

13. Söguganga um Súðavík   
1.ágúst kl. 9 frá búðinni í Súðavík.  
Hámark 25 manns. 
Fararstjóri: Anna Lind Ragnarsdóttir  

 

14. Skálavík – Bakkaskarð – Galtaviti  
1.ágúst kl. 9  á einkabílum frá búðinni í Súðavík.
Uppsöfnuð hækkun 880 m
6-8 tímar.

Vegalengd um 12 km.
Fararstjórar Anna Lind Ragnarsdóttir og Barði Ingibjartsson.

 

15. Ögur – Skarðshlíð, útsýnisferð yfir perlur Ísafjarðardjúps 
2. ágúst kl. 10.  
Við samkomuhúsið í Ögri, verð kr. 1500,- , kaffiveitingar.
Hámark 12 manns.
Fararstjóri:  Guðfinna Hreiðarsdóttir 

 

16. Kofri  
2. ágúst kl. 9. Á einkabílum frá búðinni í Súðavík. 
Hækkun í 600m hæð.
Fararstjórar:  Anna Lind Ragnarsdóttir og Barði Ingibjartsson

 

Einnig verða í boði aðrar styttri göngur um svæðið
en þær verða auglýstar síðar.

-----------------

 

17. Hesteyri – Teista – Darri – Aðalvík 
7. ágúst kl. 8.
Siglt frá Sundahöfn á  Ísafirði til Hesteyrar og gengið í vestur á fjallið Teista,
Lækjarfjall og Darra og endað á Sæbóli í Aðalvík.  

Þátttakendur skrái sig fyrir 1. ágúst á netfangið ferdafelag.isfirdinga.com

Verð auglýst síðar.

Fararstjóri: Þröstur Jóhannesson

 

18. Hjólaferð 
14. ágúst kl. 10 frá Bónus á Ísafirði.
Strembin hringleið (Dagverðardalur, Botnsheiði, Hestakleif, Syðridalur, Óshlíð)
fyrir fólk í sæmilegu formi á fjallahjólum.
Lengd 40 km, mesta hæð yfir sjávarmáli 687 m.
Tekur u.þ.b. 6 klst.
Á köflum er leiðin mjög brött og grýtt fyrir hjól.
Einungis verður farið ef veðurútlit er gott.
Láglendisleið verður höfð til vara.   
Fararstjóri:  Ómar Smári Kristinsson

 

19. Sjónfríð  
21. ágúst kl. 9.  
Á einkabílum frá Bónus á Ísafirði.  
Fararstjóri:  Sighvatur Jón Þórarinsson

 

20. Hestakleif – Miðhús  
28. ágúst kl. 8. 
Á einkabílum frá Bónus á Ísafirði að Miðhúsum, ferjað þaðan.  
Fararstjóri:  Anna Lind Ragnarsdóttir 

 

21. Grímsdalsheiði, Kvíanes í Súgandafirði – Hólsdalur í Önundarfirði
4.september kl. 9
.
Við Bónus á Ísafirði. 
Fararstjóri:  Þröstur Jóhannesson

 

22. Holt, fjölskyldu- og fjöruferð
11.september kl.10 frá Bónus á Ísafirði
Fararstjórar: Edda Björk Magnúsdóttir og Jónína Eyja Þórðardóttir

 

17. Súpuferð   
18.september kl. 10. 
Mæting við MÍ.  
Óvissuferð 
Fararstjóri:  Kemur í ljós!