Engin
eldsneytissala.
Til að fá á tankinn þarf að aka 40 km til Hrauneyja
eða 70 km. til vesturs, að Leirubakka.
Enn lengra er í næsta tank til austurs. Sama gildir
um heitar máltíðir.
Hinsvegar
er hægt að kaupa heita og kalda óáfenga drykki í sölurútu
Fjallafangs.
Ferskar
samlokur, brauð, mjólkurvörur og oftast nær eru ávextir
og silungur þar.
Einnig sælgæti, kornmeti, þurrmatur, tóbak o.flr til
áts og nautna.
Eldamennsku- og viðlegubúnaður er fábreyttur en úrvalið
er að aukast. Kort og fáein upplýsingarit
fást.
Póstkort og landakort eru bæði í búð
Fjallafangs og í skála F.Í.
Varahluti og viðgerðaefni fyrir farartæki þarf að nálgast
á fyrrnefndum fjarlægum bensínstöðvum eða enn fjær,
eftir atvikum.meira
|